Creation Science Information & Links!
Fagnaðarerindisins um Jesú Krist
The Christian Gospel Message · in Icelandic

   "Eins og ritað er: Ekki er neinn réttlátur, ekki einn."   Bréf Páls til Rómverja 3:10

   "Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð."   Bréf Páls til Rómverja 3:23

   "Laun syndarinnar er dauði, en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum."   Bréf Páls til Rómverja 6:23

   "En Guð auðsýnir kærleika sinn til vor, þar sem Kristur er fyrir oss dáinn meðan vér enn vorum í syndum vorum."   Bréf Páls til Rómverja 5:8

   "Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf."   Jóhannesarguðspjall 3:16

   "Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti."   Fyrsta bréf Jóhannesar 1:9

   "Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn - og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða.  Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis."   Bréf Páls til Rómverja 10:9-10

   "En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, er trúa á nafn hans."   Jóhannesarguðspjall 1:12

   "Jesús segir við hann: "Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig."   Jóhannesarguðspjall 14:6

   "Eins og faðirinn vekur upp dauða og lífgar, þannig lífgar og sonurinn þá, sem hann vill."   Jóhannesarguðspjall 5:21

   "Því að af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú. Þetta er ekki yður að þakka. Það er Guðs gjöf.  Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast af því."   Bréf Páls til Efesusmanna 2:8-9

   "Ég minni yður, bræður, á fagnaðarerindi það, sem ég boðaði yður, sem þér og veittuð viðtöku og þér einnig standið stöðugir í.  Því það kenndi ég yður fyrst og fremst, sem ég einnig hef meðtekið, að Kristur dó vegna vorra synda samkvæmt ritningunum, að hann var grafinn, að hann reis upp á þriðja degi samkvæmt ritningunum."   Fyrra bréf Páls til Korin 15:1,3-4

   "Játið því hver fyrir öðrum syndir yðar og biðjið hver fyrir öðrum, til þess að þér verðið heilbrigðir. Kröftug bæn réttláts manns megnar mikið."   Hið almenna bréf Jakobs 5:16

   "Þér elskaðir, elskum hver annan, því að kærleikurinn er frá Guði kominn, og hver sem elskar er af Guði fæddur og þekkir Guð. Sá sem ekki elskar þekkir ekki Guð, því að Guð er kærleikur."   Fyrsta bréf Jóhannesar 4:7-8

   "Með því að þér vitið þetta fyrirfram, þér elskaðir, þá hafið gát á yður, að þér látið eigi dragast með af villu þverbrotinna manna og fallið frá staðfestu yðar.  Vaxið í náð og þekkingu Drottins vors og frelsara Jesú Krists. Honum sé dýrðin nú og til eilífðardags. Amen."   Síðara almenna bréf Péturs 3:17-18


Fagnaðarerindisins um Jesú Krist · Íslenska
http://www.creationism.org/icelandic/salvJesusMatt6_is.htm



Aðal:  Íslenska
www.creationism.org